Innlent

Staðfesti nálgunarbann á fyrrverandi eiginmann

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hæstiréttur hefur staðfest nálgunarbann yfir manni sem grunaður er um að hafa veist að fyrrverandi eiginkonu sinni, sem nú er kominn í sambúð með öðrum manni.

Maðurinn er meðal annars sakaður um að hafa komið óboðinn heim til hennar og veist að henni þegar hún hafi bannað honum að taka húslykla og ýtt henni út úr húsinu. Hann hafi svo hleypt henni aftur inn er yngri dóttir þeirra hafi farið að gráta en hann hafi þá gripið um nef konunnar og ýtt henni.

Maðurinn er líka sakaður um að hafa sent konunni óviðeigandi SMS og að hafa unnið eignaspjöll á eigum hennar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×