Innlent

Barnið með áverka á andliti eftir eggvopn þegar það fannst

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Móðir sem skildi nýfætt sveinbarn sitt eftir í ruslageymslu við Hótel Frón á laugardag er grunuð um að hafa veitt því áverka í andliti með eggvopni áður en hún kom því fyrir. Bráðabirgðaniðurstöður krufningar leiddu í ljós að barnið var á lífi og heilbrigt þegar það fæddist en konan er talin bera ábyrgð á andláti þess.

Samkvæmt heimildum fréttastofunnar var búið að skera barnið sitthvoru megin við munnvikin þegar það fannst í ruslageymslunni við Hótel Frón. Þetta sést vel á myndum af líkinu af barninu sem eru meðal gagna málsins, samkvæmt heimildum fréttastofunnar, en um er að ræða djúpa skurði og virðist einhvers konar eggvopni hafa verið beitt.

Bráðabirgðaniðurstöður krufningar, sem kynntar voru fyrir konunni í skýrslutöku í gær, leiddu í ljós að barnið var lifandi og heilbrigt þegar það fæddist. Konan er grunuð um að bera ábyrgð á andláti þess sem bar að vofeiflegum hætti.

Bæði móðirin og fyrrverandi sambýlismaður hennar, sem eru bæði Litháar, voru í skýrslutökum í gær og í dag. Sambýlismaðurinn fyrrverandi er með réttarstöðu vitnis í málinu, að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirmanns rannsóknardeildar lögreglunnar. Konan er því ein með réttarstöðu sakbornings í málinu og er því ein grunuð um að bera ábyrgð á að hafa veitt barninu áverka, deytt það, og komið því fyrir í ruslageymslu eftir fæðingu þess.

Móðirin var á sunnudag úrskurðuð í gæsluvarðhald til 18. júlí næstkomandi en Hæstiréttur felldi gæsluvarðhaldið úr gildi í dag og taldi að skilyrði gæsluvarðhalds væru ekki fyrir hendi. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu verður niðurstaðan ekki birt á vef Hæstaréttar fyrr en eftir þrjá mánuði, vegna þess hversu viðkvæmt málið er.

Krafist var farbanns yfir konunni og Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði hana í dag í farbann til 4. ágúst næstkomandi. Verjandi konunnar sagði að ekki hefðu verið ástæður til að andmæla farbanni þar sem hún væri búsett hér á landi og hefði ekki í hyggju að fara úr landi. thorbjorn@stod2.is


Tengdar fréttir

Barnslát: Móðirin laus úr gæsluvarðhaldi

Litháíska konan, sem ól barn við Hótel Frón um helgina en skildi við það í ruslagámi stuttu seinna, hefur verið látin laus úr gæsluvarðhaldi. Þetta staðfestir verjandi konunnar í samtali við fréttastofu. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði konuna í gæsluvarðhald á sunnudaginn, eftir að barnið fannst látið í ruslagámnum. Hæstiréttur felldi úrskurðinn hins vegar úr gildi.

Tveggja vikna gæsluvarðhald og geðheilbrigði rannsakað

Litháísk kona á tuttugasta og öðru aldursári, sem er talin hafa fætt barn í gær sem fannst látið í ruslagámi við Hótel Frón þar sem hún vann, var úrskurðuð í tveggja vikna gæsluvarðhald í dag en henni var jafnframt gert að gangast undir rannsókn á geðheilbrigði. Kærasti konunnar er laus úr haldi lögreglu.

Barnslát: Konan enn á sjúkrahúsi

Barnið sem fannst látið í ruslagámi við Hótel Frón á Laugardaginn verður krufið í dag. Móðir þess er enn á sjúkrahúsi, en hún var úrskurðuð í gæsluvarðhald í gær.

Barnslát: Móðirin ekki enn yfirheyrð

Konan sem er grunuð um að hafa skilið nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón hefur enn ekki verið yfirheyrð. Hún verður væntanlega ekki útskrifuð af sjúkrahúsi fyrr eftir einn til tvo daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×