Innlent

Ökumenn hvattir til að leggja ekki ólöglega

Metfjöldi er í Húsdýragarðinum enda er varla hægt að biðja um betra veður
Metfjöldi er í Húsdýragarðinum enda er varla hægt að biðja um betra veður mynd/Hugi
Nú stendur fjölskylduhátíð yfir í Húsdýragarðinum í Laugardalnum og af þeim sökum er mikil umferð og mikið af bílum í nágrenninu.

Umferðarstofa vill hvetja ökumenn til að gæta þess að leggja ekki bílum sínum ólöglega því það getur meðal annars hindrað aðgengi gangandi og fatlaðra svo ekki sé talað um aðgengi lögreglu og sjúkrabifreiða.

Rétt er að benda gestum Húsdýragarðsins á að nota einnig þau bílastæði sem eru við íþróttamannvirki í dalnum eins og Laugardalsvöllinn eða Laugardalshöllina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×