Innlent

Harmleikur á Laugavegi: Munu krefjast farbanns yfir móðurinni

Krafist verður farbanns yfir konunni síðar í dag.
Krafist verður farbanns yfir konunni síðar í dag. Mynd/stöð2
Krafist verður farbanns yfir Litháísku konunni, sem er talin hafa skilið nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón í Reykjavík á laugardagsmorgun, í héraðsdómi í dag.

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði konuna í gæsluvarðhald á sunnudaginn en Hæstiréttur felldi úrskurðinn úr gildi í dag. Konan er því laus úr haldi lögreglu.

Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að krafan verði lögð fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur síðar í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×