Innlent

Óvenju mikið að gera hjá löggunni

Óvenju mikið var um hávaðaútköll hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt sem sinnti tíu slíkum útköllum.

Átta þeirra voru í heimahús, en svo þurfti líka að sussa á ákafa körfuboltakappa á tveimur stöðum. Hvergi voru alvarleg vandræði og lögregla þurfti ekki að taka neinn úr umferð.

Lögregla kann ekki skýringu á þessu nema hvað sumarleyfistíminn er hafinn og margir þurfa ekki að mæta til vinnu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×