Meiddist við björgunarafrek og fær engar bætur 5. júlí 2011 10:01
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag Sjóvá-Almennar tryggingar og Norðurál Grundartanga í skaðabótamáli sem starfsmaður Norðuráls höfðaði gegn þeim. Maðurinn vildi fá skaðabótaskyldu Norðuráls viðurkennda en hann hlaut bakmeiðsl þegar hann, ásamt vinnufélaga sínum, vann ótrúlegt björgunarafrek í september árið 2005. Mennirnir voru þá við vinnu í kerfóðrunardeild Norðuráls þegar bakskautsklemma féll ofan á fætur konu sem var þar að störfum. Maðurinn og samstarfsfélagi hans hlupu þá til samstarfskonunnar og lyftu klemmunni þannig að hún gat skriðið undan. Í dómnum segir að bakskautsklemman hafi vegið 620 kíló samkvæmt upplýsingum frá Norðuráli. Norðurál mótmælir því að fyrirtækið sé skaðabótaskylt. Orðrétt segir í málsvörn þess: „Stefnandi hafi sjálfur tekið þá ákvörðun að lyfta klemmunni með handafli og breyti engu um skaðabótaábyrgð aðalstefnda að stefnandi var að aðstoða samstarfskonu sína við að komast undan klemmunni. Stefnandi hafi ekki fengið nein fyrirmæli um að standa að málum með þeim hætti sem hann gerði og sé því mótmælt að verkstjóri hafi samþykkt aðferðina." Þá vill Norðurál meina að ráðrúm hefði verið til þess að beita tiltækum tækjum til þess að lyfta klemmunni af samstarfskonu mannanna. Á þessi rök féllst dómari héraðsdóms auk þess sem segir í niðurstöðu dómsins að maðurinn hafi hlotið meiðslin eftir að hann bjargaði samstarfskonunni, samkvæmt eigin ákvörðun, og því falli atvikið ekki undir lagalegar skilgreiningar um að þarna hafi slys átt sér stað.
Mest lesið Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Innlent Umfangsmestu fangaskipti frá tímum kalda stríðsins Erlent „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Innlent VG mælist með 3,5 prósent Innlent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Innlent Borinn niður af klettaborginni Innlent Fólk keyri ekki fyrr en tólf tímum eftir síðasta sopa Innlent Segir setningarathöfnina traðka á mannlegri reisn Erlent Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Innlent Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn Innlent Fleiri fréttir „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Borinn niður af klettaborginni VG mælist með 3,5 prósent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Frú forseti, klútaveisla og undrandi bændur Fólk keyri ekki fyrr en tólf tímum eftir síðasta sopa „Mýkri leiðir í hörðum heimi“ Tjá sig ekki eftir fullyrðingar ráðuneytisins í nafnabreytingarmálinu Máttu ekki synja kvikmyndagerðarmanni um eftirvinnslustyrk Fólk á förnum vegi: Ein felldi tár og önnur mjög spennt fyrir Höllu Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins „Covid virðist vera komið til að vera“ Allt að verða klárt fyrir embættistöku sjöunda forseta lýðveldisins Árásum gegn opinberum starfsmönnum fari fjölgandi Embættistaka, Covid-19 og hótanir í garð lögreglu Aukinn viðbúnaður til að bregðast við eggvopnaógn Rafbílar rétta aðeins úr kútnum eftir dýfu „Ég hef látið orð út úr mér sem hefðu átt að vera ósögð“ Fjórðungur landsmanna sótti símenntun í fyrra Íbúum með skráð lögheimili í Grindavík fækkað um tæpan þriðjung Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn Ók á mann og stakk af Rangt að ráðuneytið hafi gefið út leiðbeiningar um kenninöfn Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílveltu í Sjálandi Hefði horft á lokakvöldið hefði Hera Björk komist áfram Bíll hafnaði utan vegar í Hafnarfirði Guðni lítillátur þegar hann sagði að allt myndi bjargast án hans Allt klárt hjá lögreglu og sjálfboðaliðum fyrir þjóðhátíð Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Sjá meira