Innlent

Byssumaður handtekinn - hótaði lögreglumönnum

Lögreglan á Selfossi. Myndin er úr safni.
Lögreglan á Selfossi. Myndin er úr safni.
Lögreglunni á Selfossi bárust seint í gærkvöldi tilkynningar um að skothvellir heyrðust frá húsi á Stokkseyri.

Í framhaldi af því var húsráðandi þar, sem var ölvaður, handtekinn og er nú í vörslu lögreglu. Við handtökuna hafði hann í hótunum við lögreglumenn á vettvangi en beindi ekki skotvopnum að þeim.

Hann hefur játað að hafa hleypt af byssunni við hús sitt. Málið er til rannsóknar hjá Lögreglunni á Selfossi og nýtur hún aðstoðar sérfræðinga frá tæknideild Lögreglu Höfuðborgarsvæðisins og Sérsveitar Ríkislögreglustjóra.

Krafist verður gæsluvarðhalds yfir manninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×