Innlent

Dæmdur fyrir að stela meðal annars sex keðjusögum

Karlmaður var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Austurlands í dag fyrir fjölmörg innbrot og fjársvik.

Maðurinn játaði skýlaust brot sín sem áttu sér stað milli jóla og nýárs og í janúar síðastliðnum.

Meðal annars játaði maðurinn að hafa brotist inn á verkstæði Skógræktar ríkisins, Mörk, Hallormsstað, þar sem hann stal sex keðjusögum fyrir rúmar tvær milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×