Innlent

Ætlaði að pissa en réðist á lögreglumenn

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Maður, sem var vistaður í fangageymslu lögreglustöðvarinnar á Selfossi um helgina, ærðist og réðist á lögreglumenn sem voru að fylgja honum á salerni fangageymslunnar samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni.

Þar segir að maðurinn hafi skallað og slegið í höfuð tveggja lögreglumanna. Beita þurfti úðavopni og liðsauka til að yfirbuga manninn.

Lögreglumennirnir leituðu að því loknu til læknis. Talið er að annar þeirra sé nefbrotinn. Maðurinn hafði nokkru áður verið handtekinn í Fljótshlíð vegna líkamsárásar og fluttur í fangageymslu á Selfossi.

Mál hans verður sent saksóknara að lokinni rannsókn þar sem ákveðið verður hvort maðurinn verði ákærður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×