Innlent

Krufningu að ljúka

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Barnið fannst látið við Hótel Frón um helgina.
Barnið fannst látið við Hótel Frón um helgina.
Krufningu á kornabarninu sem fannst látið við hótel í Reykjavík um helgina er nýlokið eða rétt við það að ljúka, segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í samtali við Vísi. Friðrik Smári segir að á þessari stundu liggi ekkert fyrir í krufningunni sem geti varpað nánara ljósi á atburðarrásina. Hann segir að krufning hafi hafist rétt fyrir hádegi í dag. Friðrik Smári segir að móðir barnsins sé enn á sjúkrahúsi en hún verði væntanlega flutt þaðan í einangrun á Litla Hrauni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×