Erlent

Sögðu Obama hafa verið myrtan

Óli Tynes skrifar
Forsetinn er sem betur fer við bestu heilsu.
Forsetinn er sem betur fer við bestu heilsu.
-Barack Obama er látinn. Þetta er sorglegur fjórði júlí, sagði í Twitter skilaboðum frá Fox sjónvarpsstöðinni í dag. Nokkru síðar var því bætt við að forsetinn hefði verið skotinn tveim skotum á veitingahúsi í Iowa og látist af sárum sínum.

Þessi skilaboð sem fóru til 34 þúsund áskrifenda sjónvarpsstöðinni voru röng. Óprúttnir náungar höfðu hakkað sig inn í tölvukerfi stöðvarinnar. Þeir hafa þegar gengist við því og sögðust hafa valið Fox vegna þess að þeir hefðu búist við að öryggiskerfið þar væri jafn hlægilegt og fréttamennskan sem stöðin stundaði.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×