Innlent

Björgunarsveitarmenn aðstoða gönguhóp í þoku

Mynd úr safni
Björgunarsveit frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg á Höfn er farin til aðstoðar gönguhóp á Lónsöræfum. Hópurinn telur 7 manns og var hann á leið af Illakambi áleiðis í Kollumúlaskála en villtist af leið í mikilli þokur.

Fjarskiptasamband er við hópinn og engin hætta á ferðum. Hópurinn er vanur útivist og vel búinn. Björgunarmenn áætla að vera komnir á svæðið eftir 3-4 klukkustundir.

Á svæðinu er mikil þoka og gengur á með roki og rigningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×