Innlent

Syngja kreppulög á Austurvelli

Kórinn ætlar að koma saman á Austurvelli og syngja nokkur kreppulög
Kórinn ætlar að koma saman á Austurvelli og syngja nokkur kreppulög
Austurvallarkórinn ætlar að koma saman og syngja nokkur kreppulög á Austurvelli í Reykjavík klukkan tvö í dag.

Í tilkynningu frá kórnum segir að uppákoman verði færð í Kolaportið ef veðrið rður leiðinlegt.  Tilefni uppákomunnar sé ekki eingöngu mótmælin úti Evrópu og víðar heldur einnig að vekja áheyrendur til glaðvakandi meðvitundar um óréttlætið og lýðræðishallann í þjóðfélaginu.

Í tilkynningu kórsins segir að flestir textanna á söngdagskránni séu við þekkt íslensk lög en textunum hafi verið snúið þannig að þeir fjalli um alþekktar afleiðingar kreppunnar á lífskjör almennings.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×