Innlent

Lék sér með byssu föður síns þegar skot hljóp af

Frá bænum Tasiilaq á Grænlandi
Frá bænum Tasiilaq á Grænlandi
Sjö ára grænlensk stúlka gekkst undir stóra kviðarholsaðgerð á Landspítalanum í gærkvöldi eftir að hafa orðið fyrir voðaskoti í heimabæ sínum Tasiilaq á Grænlandi í gærdag. Óskað var eftir sjúkraflugi til Íslands síðdegis gær en þá var stúlkan talin vera í lífshættu.

Stúlkan er á batavegi og var tekin úr öndunarvél í morgun. Ástand stúlkunnar var stöðugt á leiðinni til Reykjavíkur og sjúkraflugið gekk vel samkvæmt upplýsingum frá Mýflugi sem annaðist flugið.

Samkvæmt heimildum fréttastofu var stúlkan að leika sér með byssu föður síns þegar skot hljóp af en faðir hennar kom með henni til Reykjavíkur.

Þegar sjúkraflutningamenn komu til Grænlands var stúlkan á sjúkrahúsi í bænum Tasiilaq en flugvélin frá Mýflugi flaug frá Akureyri til Kulusuk. Þaðan var farið með þyrlu til Tasiilaq og undirbjuggu þeir stúlkuna undir þyrluflug til Kulusuk þar sem sem flogið þaðan sem flogið var til Reykjavíkur. Flugvélin var lent í Reykjavík rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×