Hrósaði Íslendingum í hástert fyrir störf í Kabúl Þorbjörn Þórðarson skrifar 1. júlí 2011 19:30
Í dag eru 150 þúsund hermenn á vegum Atlantshafsbandalagsins á átakasvæðum að sinna hinum ýmsu verkefnum. Varaframkvæmdastjóri bandalagsins hrósaði vinnu Íslendinga í Kabúl í Afganistan sérstaklega í fyrirlestri í Öskju í dag. Lítill hópur mótmælenda var fyrir utan Öskju og grýtti skóm í mynd af Anders Fogh Rassmussen, framkvæmdastjóra NATÓ. Að sögn Stefáns Pálssonar sagnfræðings og eins af forsvarsmönnum samtaka hernaðarandstæðinga var þetta gert að fyrirmynd þeirra í Mið-Austurlöndum sem grýta skóm til að tjá vanþóknun sína. Claudio Bisogniero, sem er Ítali og varaframkvæmdastjóri bandalagsins, vék að skuldbindingum þess á mörgum vígstöðvum í heiminum. „Á meðan við erum í þessum sal, og njótum þægindanna í honum, eru 150 þúsund karlar og konur, hugrakkir karlar og konur, á vettvangi í þremur heimsálfum og framfylgja sex aðgerðum undir stjórn NATO," sagði Bisogniero. Bisogniero vék sérstaklega að góðu sambandi við Ísland á erindinu og starfi Íslands í Kabúl. „Áður hafið þið veitt hjálp í Kosovo. Núna veitið þið mikilvægan stuðning í Afganistan. Áður hjálpuðuð þið við flugumferðarstjórn á flugvellinum í Kabúl, sem var mjög mikilvægt. Og núna veitið þið framúrskarandi stuðning við skrifstofu borgaralegra fulltrúa (í Kabúl innsk.blm)," sagði Bisogniero. Bisogniero var á fundinum í dag spurður um samband NATÓ og Rússlands og breytt eðli þess. Hann sagði ágreining um stór mál við Rússland, en NATÓ og Rússar ættu sameiginlega hagsmuni og vilji væri til nánara samstarfs. Og að erindinu loknu gengu þeir saman og áttu kurteist spjall, Bisogniero og sendiherra Rússa á Íslandi, Andrey Tsyganov. Eflaust allt nóterað af ritara sendiherrans og sent á skrifstofu Medvedevs í Moskvu, en hann var með sendiherranum á fundinum. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent Umfangsmestu fangaskipti frá tímum kalda stríðsins Erlent „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Innlent Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Innlent Hópar slógust en enginn ætlar að kæra Innlent Leiðtogi Hezbollah boðar „nýjan fasa“ eftir að farið var yfir „rauðar línur“ Erlent Blinken segir González réttkjörinn forseta en Maduro situr sem fastast Erlent VG mælist með 3,5 prósent Innlent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Innlent Fleiri fréttir Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Hópar slógust en enginn ætlar að kæra „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Borinn niður af klettaborginni VG mælist með 3,5 prósent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Frú forseti, klútaveisla og undrandi bændur Fólk keyri ekki fyrr en tólf tímum eftir síðasta sopa „Mýkri leiðir í hörðum heimi“ Tjá sig ekki eftir fullyrðingar ráðuneytisins í nafnabreytingarmálinu Máttu ekki synja kvikmyndagerðarmanni um eftirvinnslustyrk Fólk á förnum vegi: Ein felldi tár og önnur mjög spennt fyrir Höllu Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins „Covid virðist vera komið til að vera“ Allt að verða klárt fyrir embættistöku sjöunda forseta lýðveldisins Árásum gegn opinberum starfsmönnum fari fjölgandi Embættistaka, Covid-19 og hótanir í garð lögreglu Aukinn viðbúnaður til að bregðast við eggvopnaógn Rafbílar rétta aðeins úr kútnum eftir dýfu „Ég hef látið orð út úr mér sem hefðu átt að vera ósögð“ Fjórðungur landsmanna sótti símenntun í fyrra Íbúum með skráð lögheimili í Grindavík fækkað um tæpan þriðjung Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn Ók á mann og stakk af Rangt að ráðuneytið hafi gefið út leiðbeiningar um kenninöfn Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílveltu í Sjálandi Hefði horft á lokakvöldið hefði Hera Björk komist áfram Bíll hafnaði utan vegar í Hafnarfirði Sjá meira