Erlent

Nafnlaus hetja húðskammar óeirðaseggi

Myndband þar sem miðaldra kona frá Vestur Indíum húðskammar óeirðaseggi í Hackney-hverfinu í London hefur farið eins og eldur um sinu í netheimum. Sá sem náði ræðu hennar á myndband fyrir tilviljun, Matthew Moore, segir að þessi hugrakka kona hafi horfið áður en hann náði nafninu hennar.

Þeir sem hafa horft á ræðuna segja hana hafa komið í orð nákvæmlega það sem þeir eru að hugsa og hafa sumir gengið svo langt að segja að þessi nafnlausa hetja eigi að verða næsti forsætisráðherra.

Meðal þess sem konan hrópar að skemmdarvörgum og ofbeldismönnum er að þeir séu sannarlega ekki að berjast fyrir neinn málstað heldur einfaldlega að brenna skóbúðir.

Myndbandið er hér meðfylgjandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×