Erlent

Vill skaðabætur frá unnustunni sem yfirgaf hann

Maður einn í Malasíu hefur farið í mál við unnustu sína fyrrverandi og vill fá rúmar 45 milljónir króna frá henni í skaðabætur. Konan yfirgaf hann nefnilega, aðeins sex tímum fyrir fyrirhugað brúðkaup hjónaleysanna.

Maðurinn, sem er auðvitað lögfræðingur, heldur því fram að æra hans og fjölskyldu hans hafi beðið hnekki þegar kærastan hætti við. Þá hafði hann einnig boðið 1200 gestum til mikillar veislu sem kostaði sitt og útheimti mikla skipulagningu.

Konan hefur enga skýringu gefið á því hversvegna hún hætti við á síðustu stundu, en viðbrögð mannsins við þeirri ákvörðun, gætu gefið vísbendingu um ástæðurnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×