Erlent

Hvítabjörn drap einn og særði fjóra

Óli Tynes skrifar
Úr myndasafni.
Úr myndasafni.
Einn maður lét lífið og fjórir særðust alvarlega í árás ísbjarnar á Svalbarða í dag. Mennirnir voru Bretar en ekki er vitað hvað þeir voru að gera á þessum slóðum. Einum úr hópnum tókst að skjóta dýrið til bana. Svo virðist sem fólkið hafi verið í tjöldum sínum þegar hvítabjörninn réðist á það.

 

Hinir fjórir særðu eru allir með mikla höfuðáverka og hefur sjúkraflugvél verið send frá Noregi með sérhæfðan tækjabúnað til þess að sinna þeim. Fólkið var um 40 kílómetra frá Longeyarbyen þegar björninn gerði árás.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×