Erlent

Öryggisráðið fordæmdi loksins sýrlensk stjórnvöld

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna náði loks samstöðu í gærkvöldi um yfirlýsingu þar sem sýrlensk stjórnvöld eru fordæmd fyrir þá hörku sem þau hafa beitt gegn mótmælendum í landinu.

Tekið er fram í erlendum fjölmiðlum að um yfirlýsingu sé að ræða en ekki ályktun enda hafa Rússar og Kínverjar sagst munu beita neitunarvaldi sínu gegn slíkri ályktun. Yfirlýsingin sé því málamiðlun.

Í frétt um málið á BBC segir að þótt yfirlýsingin sé harðorð er hún lagt frá því sem fulltrúar Evrópuþjóða vildu ná fram sem var m.a. rannsókn á athæfi sýrlenskra stjórnvalda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×