Innlent

Borgin leggur dagsektir á eigendur húsa

Ingunn Wernesdóttir er eigandi eins eignarhaldsfélagsins sem sætir dagsektum.
Ingunn Wernesdóttir er eigandi eins eignarhaldsfélagsins sem sætir dagsektum.
Dagsektir verða lagðar á eiganda hússins að Þingholtsstræti 29a í Reykjavík vegna seinagangs við framkvæmdir samkvæmt fréttastofu RÚV. Eigendi hússins er eignarhaldsfélag í eigu Ingunnar Wernersdóttur.

Það var samþykkt í borgarráði í vikunni að leggja dagsektir á eiganda hússins auk eiganda tíu annarra húsa í miðbænum.

Hús Ingunnar er að öllu jöfnu kallað gamla bókasafnið en þar hafa framkvæmdir staðið yfir í talsverðan tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×