Innlent

Mikinn reyk lagði frá Sundahöfn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Eldur slökktur í Sundahöfn.
Eldur slökktur í Sundahöfn. Mynd/ Pjetur.
Eldur kviknaði í dekkjum í Sundahöfn um fjögurleytið í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var um lítinn eld að ræða og var eldurinn slökktur fljótlega. Töluverðan reyk lagði frá eldinum og sást hann víðsvegar að úr Reykjavík.

Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, sem Pjetur Sigurðsson ljósmyndari tók, var grafa notuð til að slökkva eldinn með því að hella sandi yfir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×