Innlent

Óska RÚV til hamingju með Emmy tilnefningu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
RÚV hlaut Emmy tilnefningu á dögunum.
RÚV hlaut Emmy tilnefningu á dögunum.
Stjórn Blaðamannafélag Íslands samþykkti ályktun í dag þar sem fréttastofu RÚV er óskað til hamingju með þá miklu viðurkenningu sem fólgin er í því fyrir fréttamenn og fréttamyndatökumenn fréttastofunnar að fréttaflutningur af eldgosinu í Eyjafjallajökli hafi verið tilnefndur til Emmyu verðlauna. Segir stjórn Blaðamannafélagsins að þetta sé glæsilegur árangur af starfi frétta- og fréttamyndatökumanna fréttastofunnar um árabil.

Stjórn Blaðamannafélagsins segir að sérstaklega ánægjuleg sé sú viðurkenning sem fórnfúst starf fréttamyndatökumanna fréttastofunnar fær með þessu. Þeir þurfi oft að leggja á sig mikla erfiðleika og jafnvel hættu til þess að geta sýnt sjónvarpsáhorfendum sem best myndir af fréttnæmum atburðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×