Innlent

Nýtt skólahús vígt í Hvalfjarðarsveit

Hönnun hússins var í höndum Studio strik.
Hönnun hússins var í höndum Studio strik.
Nýtt skólahúsnæði verður vígt í Hvalfjarðarsveit í dag við setningu skólans klukkan fjögur. Um er að ræða sameinaðan leik- og grunnskóla í en hönnun hússins var í höndum arkitektastofunnar Studio strik. Ingibjörg Hannesdóttir segir um merkisdag í skólasögu Hvalfjarðarsveitar að ræða.

„Frá og með þessu hausti er unnið eftir nýju skipuriti sameinaðs leik- og grunnskóla í Hvalfjarðarsveit, þar sem sameinaðir hafa verið grunnskólinn Heiðarskóli og leikskólinn Skýjaborg.  Það eru því spennandi tímar framundan í skólamálum hér, rétt í næsta nágrenni Reykjavíkur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×