Kveikt á Friðarsúlunni til minningar um fórnarlömb hryðjuverkaárásanna 21. ágúst 2011 18:37
Ljós verður tendrað á Friðarsúlunni í Viðey í kvöld til minningar um þá sem létu lífið í hryðjuverkaárásunum í Noregi. Opinber minningarathöfn um fórnarlömbin fór fram í Osló síðdegis í dag. Með því að tendra ljós friðarsúlunnar vill Reykjavíkurborg senda innilegar samúðarkveðjur til Norðmanna og minnast fórnarlambanna sem týndu lífi í árásunum. Minningarathöfn fór fram í Spektrum miðstöðinni í Osló síðdegis í dag. Hana sóttu meðal annars þjóðhöfðingjar Noregs, forsetar Íslands og Finnlands og ríkisarfar Danmerkur og Svíþjóðar. Haraldur fimmti, noregskonungur, var klökkur þegar hann talaði við minningarathöfnina. „Við misstum 77 manneskjur sem vildu verja lífi sínu til að bæta samfélagið sem þær bjuggu í. Við munum heiðra minningu þeirra með því að halda áfram að hlúa að þeim gildum sem voru þeim svo mikilvæg." Að öllu jöfnu er ekki kveikt á Friðarsúlunni fyrr en 9.október ár hvert, á afmælisdegi John Lennons en í samráði við Yoko Ono var ákveðið að gera undantekningu þar á. Ljós súlunnar verður tendrað um níuleytið og hægt er að fylgjast með því í beinni útsendingu á vefsíðunni imaginepeace.com. Ljós hennar logar frá sólsetri í kvöld og fram á morgun. Dagskráin í Viðey hefst klukkan hálf níu í kvöld þar sem Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson verða meðal annars með tónlistaratriði.
Mest lesið Fékk 549.127 krónur í afslátt af bílnum Innlent Lést af völdum langvinnrar lungateppu og astma Erlent Íslendingur handtekinn vegna skemmdarverka í Mexíkó Erlent Málum vegna dyrabjöllumyndavéla muni fjölga Innlent Maduro endurkjörinn í afar óeðlilegum kosningum Erlent Ferðamenn í vanda í ám á Fjallabaksleið og Þórsmörk Innlent Handteknir við að stela dósum úr gám Innlent Kynnir breytingar á hæstarétti og friðhelgi forseta Erlent Troðfullt á bílastæði við þjóðveginn og löng bið fram undan Innlent Þrír drengir handteknir eftir rúðubrot og átök við lögreglu Innlent Fleiri fréttir Rannsaka þátt rútubílstjóra sem fylgdist með hraðanum í síma Bílakaup verðandi forseta Heilmiklar skemmdir sem mun taka sinn tíma að gera við Engin merki um hlaupóróa lengur Kortleggja gamlar sundlaugabyggingar um allt land Ferðamenn í vanda í ám á Fjallabaksleið og Þórsmörk Fékk 549.127 krónur í afslátt af bílnum Hringvegurinn opnaður en ökumenn beðnir um að sýna tillitssemi Handteknir við að stela dósum úr gám Þrír drengir handteknir eftir rúðubrot og átök við lögreglu Vatnshæð lækkar áfram en hlaupið ekki alveg búið Málum vegna dyrabjöllumyndavéla muni fjölga Síðasta ávarp Guðna í embætti: „Þið eruð geggjuð!“ Rannsaka möguleika til kolefnisförgunar í Hvalfirði „Þó nokkur aðgerð“ að sækja göngumanninn sem steig í hver Hringvegurinn opinn á ný Öll fjögur hlaupin undir Mýrdalsjökli komið að óvörum RAX flaug yfir jökulhlaupssvæðið Smíðaði stærstu skeifu heims úr 2.852 skeifum Troðfullt á bílastæði við þjóðveginn og löng bið fram undan Farangurinn varð eftir og þurfa að keyra hringinn til að ná í hann Vatnsflaumur og vísindarannsóknir í Hvalfirði Kunningi lögreglunnar grunaður um alvarlega líkamsárás Þyrlan í vandræðum með að sækja mann sem steig í hver Hefur áhyggjur af viðhorfi Viðskiptaráðs Sækja slasaðan göngumann í Kerlingarfjöll Ferðamenn festu bíl á Fjallabaksleið nyrðri Leita skýringa á stærð hlaupsins sem er nánast búið Hringvegurinn líklega lokaður til kvölds „Það taka þessu allir með stóískri ró“ Sjá meira