Innlent

Sækir minningarathöfn í Osló

Ólafur Ragnar Grímson, forseti Íslands.
Ólafur Ragnar Grímson, forseti Íslands. Mynd/Valli
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímson, mun í dag sækja minningarathöfn um þá sem létu lífið í hryðjuverkaárásunum tveimur í Osló og í Útey þann 22. júlí síðastliðinn.

Athöfnin fer fram í Oslo Spektrum miðstöðinni í Osló og hefst hún klukkan 15:00 að norskum tíma. Þjóðhöfðingjar Noregs, Íslands og Finnlands munu sækja athöfnina, auk ríkisarfa Danmerkur og Svíþjóðar, og annarra norrænna og norskra ráðamanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×