Jóhanna segir VG í hættulegum leik 30. ágúst 2011 12:03 Mynd/GVA
Forsætisráðherra segir ályktanir flokksráðsfundar Vinstri Grænna sem beinast að ráðherrum samfylkingarinnar óskiljanlegar. Hún styður sína ráðherra og segir ákvarðanir þeirra réttar. Það sé hins vegar hættulegur leikur fyrir ríkisstjórnina að takast á með ályktunum. Flokksráðsfundur Vinstrigrænna, sem var haldinn um helgina, sendi frá sér ályktun þar sem m.a. er deilt á Össur Skarphéðinsson. Flokkurinn krafðist þess að skipuð verði rannsóknarnefnd til að rannsaka aðdraganda þess að Össur lýsti yfir stuðningi, fyrir Íslands hönd, við aðgerðir Nato í Líbýu. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segist hins vegar ósammála þessum ályktunum samstarfsflokki hennar í ríkisstjórn. Hún styður Össur algerlega í því máli, segir hann hafa fylgt öllum hefðum og bendir á að málið hafi verið rætt í ríkisstjórn. Flokksráð Vinstri grænna lagði jafnframt til að hætt verði við frekari niðurskurð og skattar verði hækkaðir frekar í staðinn. Jóhanna hefur hins vegar litlar áhyggjur af því að fjármálaráðherra, sem er jafnframt formaður Vinstri grænna, fari eftir þeirri ályktun. Hún segir að búið sé að fara yfir fjárlögin í ríkisstjórninni og niðurstaða komin í það mál sem hún segist vonast til að ágætis samhljómur sé um. Í síðustu viku gangrýndi þingflokkur VG síðan Katrínu Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra Samfylkingarinnar, fyrir að setja af stjórn Byggðastofnunar og skipa nýja. Hún segir hins vegar engan titring vera að myndast í stjórnarsamstarfinu. „Umfram allt eiga flokkarnir ekki að skiptast á skoðunum í gegnum ályktanir, það er alvarlegur leikur,“ segir Jóhanna.
Mest lesið Gæti orðið ófært í Þórsmörk Innlent Þyrlan í vandræðum með að sækja mann sem steig í hver Innlent Halla verði að upplýsa um bílakaupin Innlent Lögreglan lýsir eftir My Ky Le Innlent Hefur áhyggjur af viðhorfi Viðskiptaráðs Innlent Frumvarp um sviptingu verndar lítur dagsins ljós í haust Innlent Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Hlaupið minnkað verulega en jökullinn skelfur enn Innlent „Það taka þessu allir með stóískri ró“ Innlent Ferðamenn festu bíl á Fjallabaksleið nyrðri Innlent Fleiri fréttir Vatnsflaumur og vísindarannsóknir í Hvalfirði Kunningi lögreglunnar grunaður um alvarlega líkamsárás Þyrlan í vandræðum með að sækja mann sem steig í hver Hefur áhyggjur af viðhorfi Viðskiptaráðs Sækja slasaðan göngumann í Kerlingarfjöll Ferðamenn festu bíl á Fjallabaksleið nyrðri Leita skýringa á stærð hlaupsins sem er nánast búið Hringvegurinn líklega lokaður til kvölds „Það taka þessu allir með stóískri ró“ Jökulhlaup, deilur um grunnskólamál og sundkappi Vegagerðin og deilur um menntakerfið Frumvarp um sviptingu verndar lítur dagsins ljós í haust Mótmæla brottvísun Venesúelamanna við Hallgrímskirkju Hlaupið minnkað verulega en jökullinn skelfur enn Gæti orðið ófært í Þórsmörk Kýldi leigubílstjórann og borgaði ekki Lögreglan lýsir eftir My Ky Le Ekkert bendi til að hlaupið sé afleiðing eldgoss Halla verði að upplýsa um bílakaupin Meira en nóg að gera á Herjólfi í sumar Óljóst hvað veldur svo stórum jökulhlaupum „Vitum ekki til þess að nokkur hafi verið í hættu“ „Rúm tuttugu ár síðan við sáum þessa þróun fyrir“ Óvissustig vegna jökulhlaups og Druslugangan Lýsa yfir óvissustigi og skipa fólki að yfirgefa svæðið Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Áhyggjur af gasmengun vegna jökulhlaups Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Bílakaup verðandi forseta og Druslugangan Lögreglan búin að finna manninn sem beraði sig Sjá meira