Innlent

Konur á leið úr vændi fá athvarf

Tímamót urðu í sögu Stígamóta í dag þegar nýtt kvennaathvarf fyrir konur á leið úr vændi og mansali var opnað. Vændi er falið og marar í kafi segir verkefnisstýra athvarfsins.

Á blaðamannafundi í morgun kom fram að vændi er ofbeldi gegn konum og að ábyrgðin liggi hjá þeim sem nýta sér þjónustu kvennanna. Vonast er til að athvarfið verði til þess að fordómar í garð kvenna sem eru í vændi minnki. Þegar sektin er ekki þeirra eiga þær auðveldara með að leita sér hjálpar.

Fjármagn hefur verið tryggt til þess að reka athvarfið í eitt ár og segir Steinunn að það hafi tekist með gríðarlegri aðstoð frá sjálfboðaliðum og fjöldanum öllum af fólki sem hefur lagt verkefninu lið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×