Innlent

Radarvörum stolið og fíkniefni gerð upptæk

Brotist var inn í þrjá bíla í Reykjavík í gær og radarvara stolið úr þeim öllum samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.

Tveir bílanna voru í Bryggjuhverfinu en sá þriðji í Grafarvogi. Þjófar reyndu líka að brjótast inn í bíl í Árbæ en til þeirra sást og voru þeir þá fljótir að láta sig hverfa.

Fíkniefni fundust á þremur stöðum í Hafnarfirði í gær. Um var að ræða bæði amfetamín og kannabisefni. Þrír karlar á þrítugsaldri voru handteknir í tengslum við þessar aðgerðir lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×