Varasamar biðstöðvar þyrnir í augum Strætó 9. júlí 2011 06:30 Á efri myndinni má sjá farþega bíða eftir vagni á biðstöðinni norðan Vesturlandsvegar. Þeir sem standa lengst til vinstri skýla sér fyrir umferðinni á bak við vegrið. Á neðri myndinni má sjá brekkuna sem farþegar þurfa að klífa til að komast í strætó. Mynd/Pjetur „
Þetta er ekki til fyrirmyndar," segir Einar Kristjánsson, hjá skipulags- og þróunarsviði Strætós, um tvær biðstöðvar á Vesturlandsvegi. Aðstæður við biðstöðvarnar tvær verða seint kallaðar góðar. Sú norðanmegin götunnar, við Viðarhöfða, stendur þétt við akbrautina og engin leið er að henni nema upp brattan grasbala. Vandséð er að fatlaðir, fólk með barnavagna eða aðrir sem komast ekki óhindrað leiðar sinnar geti með góðu móti tekið strætisvagn til eða frá stöðinni. Hinum megin götunnar, hjá bensínstöð Skeljungs, er biðstöðin sömuleiðis svo þétt við fjölfarinn Vesturlandsveginn að varla nokkuð skilur farþegana frá götunni annað en kantsteinninn. Einar bendir á að Strætó hafi lítið um biðstöðvarnar sjálfar að segja, þær séu á forræði hvers sveitarfélags fyrir sig. „En við vinnum þetta mjög náið með sveitarfélögunum og höfum í tæp fjögur ár verið að berjast fyrir breytingum á þessum stöðvum á Vesturlandsveginum," segir Einar. „Vandræðin liggja í því að Vesturlandsvegurinn er ríkisvegur innan þéttbýlis. Reykjavíkurborg og Vegagerðin þurfa þess vegna að ná samkomulagi um þessi mál og við erum í rauninni bara lúsin milli tveggja nagla," bætir hann við. Einar segir hins vegar að nýlega hafi borist bréf frá borginni þar sem lausn sé sögð í sjónmáli. Búið sé að teikna upp nýja biðstöð norðan megin og gera tillögu um að færa þá sunnan megin niður á Viðarhöfða. „Það mun hins vegar tefja vagninn og svo mikið að við vitum ekki alveg hvort við getum sett það inn í okkar áætlun," segir hann. „Við höfum helst viljað leggja þessa biðstöð niður," segir Einar. Það sé hins vegar ekki ákvörðun Strætós og biðstöðin sé töluvert notuð. Vonandi hilli hins vegar undir lausn. Strætó fundi reglulega með framkvæmdaráði borgarinnar. „Og þessar biðstöðvar eru alltaf með á hverjum einasta fundi og verða það þangað til lausnin er fundin." stigur@frettabladid.is
Mest lesið Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins Innlent Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn Innlent Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Innlent Sagði Harris nýlega „orðna svarta“ Erlent Samkomulag í höfn við höfuðpaura hryðjuverkaárásanna 11. september Erlent „Ég hef látið orð út úr mér sem hefðu átt að vera ósögð“ Innlent „Covid virðist vera komið til að vera“ Innlent Tjá sig ekki eftir fullyrðingar ráðuneytisins í nafnabreytingarmálinu Innlent Segja hægt að koma í veg fyrir eða seinka um helmingi Alzheimers tilvika Erlent Viðvörun gefin út vegna úlfs sem beit stúlku og drap púðluhund Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Frú forseti, klútaveisla og undrandi bændur Fólk keyri ekki fyrr en tólf tímum eftir síðasta sopa „Mýkri leiðir í hörðum heimi“ Tjá sig ekki eftir fullyrðingar ráðuneytisins í nafnabreytingarmálinu Máttu ekki synja kvikmyndagerðarmanni um eftirvinnslustyrk Fólk á förnum vegi: Ein felldi tár og önnur mjög spennt fyrir Höllu Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins „Covid virðist vera komið til að vera“ Allt að verða klárt fyrir embættistöku sjöunda forseta lýðveldisins Árásum gegn opinberum starfsmönnum fari fjölgandi Embættistaka, Covid-19 og hótanir í garð lögreglu Aukinn viðbúnaður til að bregðast við eggvopnaógn Rafbílar rétta aðeins úr kútnum eftir dýfu „Ég hef látið orð út úr mér sem hefðu átt að vera ósögð“ Fjórðungur landsmanna sótti símenntun í fyrra Íbúum með skráð lögheimili í Grindavík fækkað um tæpan þriðjung Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn Ók á mann og stakk af Rangt að ráðuneytið hafi gefið út leiðbeiningar um kenninöfn Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílveltu í Sjálandi Hefði horft á lokakvöldið hefði Hera Björk komist áfram Bíll hafnaði utan vegar í Hafnarfirði Guðni lítillátur þegar hann sagði að allt myndi bjargast án hans Allt klárt hjá lögreglu og sjálfboðaliðum fyrir þjóðhátíð Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Guðni kveður og skemmdarverk á grunnskóla Þrír fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Egill telur eitt og annað óljóst við bílatilboð Ástþórs „Þetta gekk ágætlega, takk fyrir mig“ Sjá meira