Erlent

Danir bíða spenntir eftir fæðingu konunglegra tvíbura

Danska þjóðin fylgist nú spennt með hverju fótmáli Mary krónprinsessu og Friðriks krónprins en Mary gengur með tvíbura undir belti og fæðing þeirra er á næsta leyti.

Raunar gæti fæðingin orðið strax um helgina. Blaðið BT greinir frá því í morgun að sést hafi til Friðriks krónprins á Rigshospitalet í Kaupmannahöfn gærkvöldi þar sem hann ræddi við fæðingarlækni Mary.

Þá hefur krónprinsinn hreinsað út dagbók sína fyrir komandi tvær vikur og mun ekki taka þátt í neinum fundum né opinberum athöfnum á þeim tíma.

Ekki fást aðrar upplýsingar um fæðinguna frá konungsfjölskyldunni en að tvíburarnir muni koma í heiminn í þessum mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×