Erlent

Sænska lögreglan ræðst gegn Hells Angels

Sænska lögreglan lét til skarar skríða gegn Hells Angels mótorhjólagengi Malmö borgar í gærkvöldi.

Aðgerðin hófst eftir að þrír meðlimir Hells Angels í borginni voru handteknir þar sem þeir voru að undirbúa rán. Í framhaldinu réðist lögreglan inn í klúbbhús gengisins í Malmö en þar var m.a. lagt hald á skotvopn og skotfæri. Hinsvegar voru fleiri ekki handteknir.

Í blaðinu Sydsvenskan er haft eftir heimildum innan Hells Angels að af þeim þremur sem handteknir voru hafi einn verið fullgildur meðlimur gengisins en tveir hafi verið stuðningsmenn þess.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×