Vatnsberinn var ekki í fylgd lögreglu á spítalanum 1. júlí 2011 20:20 "Það kom enginn frá fangelsismálastofnun eða lögreglunni. Auðvitað átti lögreglan að vera í fylgd með honum,“ segir Elín Mjöll Þórhallsdóttir. Þór hlaut viðurnefnið Vatnsberinn í tengslum við stórfelld svik á virðisaukaskatti í tengslum við vatnsverksmiðju í Hafnarfirði á tíunda ártug síðustu aldar. Mynd/GVA
Þór Óliver Gunnlaugsson, sem afplánar dóm fyrir morð og lögregla lýsti eftir í dag, var ekki í fylgd lögreglumanna eða fangavarða þar sem hann var í læknismeðferð á Landspítalanum. Í tilkynningu frá lögreglu kom fram að Þór væri hættulegur. Tæpum tveimur tímum eftir að Þór yfirgaf spítlann lét hann vita af sér. Undanfarna daga hefur Þór dvalið á meðferðarheimlinu Hlaðgerðarkoti en til stendur að honum yrði sleppt úr fangelsi í haust. Þór Óliver hét áður Þórhallur Ölver og er einnig oft kallaður Vatnsberinn. Hann á að baki langan sakaferil en hann hefur setið í fangelsi undanfarin ár eftir að hann myrti Agnar W. Agnarsson árið 1999. Dóttir Þórs, Elín Mjöll Þórhallsdóttir, gagnrýnir vinnubrögð fangelsismálayfirvalda og lögreglu. Hún segir að faðir sinn hafi hvorki verið í fylgd lögreglu eða fangavarða á spítalanum. Þór hafi verið sendur þangað einn með sjúkrabíl úr Hlaðgerðarkoti en þar hefur hann dvalið í um viku. Að sögn Elínar var Þór með mikla verki.Án eftirlits Aðspurð hvað amaði að Þór segir Elín: „Hann hefur farið í hjartaþræðingar, hann var með verki fyrir brjósti og einhverja verki í síðu. Hann var ekki eins og hann á að sér að vera. Þeir hafa ákveðið að hringja á sjúkrabíl þannig að eitthvað var að honum. Hann ákvað þetta ekki sjálfur," segir Elín. „Það kom enginn frá fangelsismálastofnun eða lögreglunni. Auðvitað átti lögreglan að vera í fylgd með honum. Hann hefur alltaf verið í fylgd með lögreglu frá því ég man eftir mér," segir Elín.Sagður hættulegur Þór hringdi í dóttur sína fyrr í dag af spítalanum og þangað fór hún klukkan tvö. „Þar sat hann útúrdópaður af morfíni sem hann fékk á sjúkrahúsinu. Ég spurði lækninn af hverju hann væri ekki í fylgd [innskot blaðamanns: lögreglumanna eða fangavarða] og læknirinn vissi ekki um hvað ég var að tala og sagði að hann mætti fara eftir blóðprufu." Elín undrast af hverju faðir hennar hafi verið einn á sjúkrahúsinu. „Hann var valtur á fótunum og ekki í ástandi til að fara einn ferða sinna. Þeir [innskot blaðamanns: fangelsismálayfirvöld] þekkja hans sögu. Ég hélt að það myndi einhver sækja hann, en svo ráfar hann út í sínu annarlega ástandi," segir Elín sem fór frá föður sínum rétt eftir klukkan þrjú í dag. Það var síðan á fimmta tímanum í dag sem lögregla lýsti eftir Þór og sagði hann hættulegan. „Hann átti aldrei að vera skilinn eftir einn í þessu ástandandi," segir Elín. Þór gaf sig síðan fram um sexleytið. Hann var í framhaldinu færður í Hegningarhúsið við Skólavörðustíg.Sleppur í haust Elín segir að til standi að sleppa föður hennar í haust og nú sé verið að reyna að undirbúa hann undir það. Hann hafi dvalið um stund á áfangaheimilinu Vernd en undanfarna daga hafi Þór verið í Hlaðgerðarkoti.
Tengdar fréttir Vatnsberinn fannst á meðferðarheimili Þór Óliver Gunnlaugsson, hættulegur strokufangi, sem lýst var eftir fyrr í dag er fundinn. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglu fannst Þór í Hlaðgerðarkoti sem er meðferðarheimili fyrir áfengissjúklinga. Hann verður fluttur í fangelsið á Skólavörðustíg og væntanlega í framhaldinu á Litla-Hraun. 1. júlí 2011 17:55 Vatnsberinn var á spítala þegar hann strauk Þór Óliver Gunnlaugsson, sem áður hét Þórhallur Ölver og oft er kallaður Vatnsberinn, og lýst er eftir á að baki langan sakaferil eða allt frá árinu 1979. Hann hefur setið í fangelsi frá 1999 fyrir að hafa myrt Agnar W. Agnarsson á heimili sínu við Leifsgötu í Reykjavík. 1. júlí 2011 17:23 Lögreglan lýsir eftir hættulegum strokufanga Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir, Þór Óliver Gunnlaugssyni, (áður Þórhallur Ölver Gunnlaugsson). Þórhallur var á höfuðborgarsvæðinu þegar hann strauk að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. Hann var klæddur í bláar gallabuxur og var í bláum stuttermabol. Hann er talinn vera hættulegur og afplánar 16 ára fangelsi. 1. júlí 2011 17:00 Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Erlent „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Innlent Hópar slógust en enginn ætlar að kæra Innlent Umfangsmestu fangaskipti frá tímum kalda stríðsins Erlent Leiðtogi Hezbollah boðar „nýjan fasa“ eftir að farið var yfir „rauðar línur“ Erlent Alldjúp lægð færir með sér gula viðvörun Veður Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu Erlent Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Innlent Fleiri fréttir Auknar líkur á skriðuföllum um helgina Úrkoman í júlí sló met Fer yfir hvernig maður er með öryggið á oddinum yfir versló Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Hópar slógust en enginn ætlar að kæra „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Borinn niður af klettaborginni VG mælist með 3,5 prósent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Frú forseti, klútaveisla og undrandi bændur Fólk keyri ekki fyrr en tólf tímum eftir síðasta sopa „Mýkri leiðir í hörðum heimi“ Tjá sig ekki eftir fullyrðingar ráðuneytisins í nafnabreytingarmálinu Máttu ekki synja kvikmyndagerðarmanni um eftirvinnslustyrk Fólk á förnum vegi: Ein felldi tár og önnur mjög spennt fyrir Höllu Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins „Covid virðist vera komið til að vera“ Allt að verða klárt fyrir embættistöku sjöunda forseta lýðveldisins Árásum gegn opinberum starfsmönnum fari fjölgandi Embættistaka, Covid-19 og hótanir í garð lögreglu Aukinn viðbúnaður til að bregðast við eggvopnaógn Rafbílar rétta aðeins úr kútnum eftir dýfu „Ég hef látið orð út úr mér sem hefðu átt að vera ósögð“ Fjórðungur landsmanna sótti símenntun í fyrra Íbúum með skráð lögheimili í Grindavík fækkað um tæpan þriðjung Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn Ók á mann og stakk af Rangt að ráðuneytið hafi gefið út leiðbeiningar um kenninöfn Sjá meira
Vatnsberinn fannst á meðferðarheimili Þór Óliver Gunnlaugsson, hættulegur strokufangi, sem lýst var eftir fyrr í dag er fundinn. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglu fannst Þór í Hlaðgerðarkoti sem er meðferðarheimili fyrir áfengissjúklinga. Hann verður fluttur í fangelsið á Skólavörðustíg og væntanlega í framhaldinu á Litla-Hraun. 1. júlí 2011 17:55
Vatnsberinn var á spítala þegar hann strauk Þór Óliver Gunnlaugsson, sem áður hét Þórhallur Ölver og oft er kallaður Vatnsberinn, og lýst er eftir á að baki langan sakaferil eða allt frá árinu 1979. Hann hefur setið í fangelsi frá 1999 fyrir að hafa myrt Agnar W. Agnarsson á heimili sínu við Leifsgötu í Reykjavík. 1. júlí 2011 17:23
Lögreglan lýsir eftir hættulegum strokufanga Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir, Þór Óliver Gunnlaugssyni, (áður Þórhallur Ölver Gunnlaugsson). Þórhallur var á höfuðborgarsvæðinu þegar hann strauk að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. Hann var klæddur í bláar gallabuxur og var í bláum stuttermabol. Hann er talinn vera hættulegur og afplánar 16 ára fangelsi. 1. júlí 2011 17:00