Þriggja ára samningar ómögulegir án aðkomu ríkisins 26. apríl 2011 15:46 Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA.
Samtök atvinnulífsins telja að besti kosturinn fyrir þjóðina sé að atvinnuleiðin verði farin út úr kreppunni og að sátt skapist um að atvinnulífið verði tekið úr handbremsu. Í tilkynningu frá SA segir að mikilvægur þáttur þeirrar leiðar sé gerð kjarasamninga til þriggja ára sem SA vinna enn að því að gera. Þá segir að samningaviðræðum hafi ekki verið slitið og hafa aðilar rætt saman þótt tímabundið hlé hafi verið gert á formlegum fundum fyrir páska. „Það er mikilvægt að tryggja frið á vinnumarkaði næstu þrjú árin og skapa um leið þær aðstæður að kröftug uppsveifla geti hafist í atvinnulífinu. Aðeins þannig er hægt að skapa ný störf, tryggja fólki og fyrirtækjum auknar tekjur og minnka atvinnuleysi sem er í sögulegu hámarki,“ segir ennfremur. Samtökin segja ekki hægt að gera kjarasamning til þriggja ára án aðkomu stjórnvalda. „Það er á þeirra færi að ryðja burt hindrunum sem standa í vegi hagvaxtar, s.s. á sviði skattamála, orkunýtingar og stórframkvæmda,“ segir ennfremur og því bætt við að stjórnvöld verði að skapa fyrirtækjum í landinu öruggara starfsumhverfi til þess stuðla að eðlilegri þróun þeirra og möguleikum á því að greiða hærri laun. „Samtök atvinnulífsins telja nauðsynlegt að ná sátt um málefni sjávarútvegsins, bæði fyrir þjóðina og atvinnugreinina. Sjávarútvegurinn er ein meginstoða íslensks atvinnulífs og verður ekki skilin eftir í þeirri atvinnusókn sem nauðsynlegt er að hefja sem fyrst,“ segir að endingu og því bætt við að í stjórn SA ríki full samstaða um Atvinnuleiðina.
Mest lesið Silja Björk biður Ingó afsökunar Innlent Helgi í Góu og fyrrverandi borguðu brúsann Innlent Albert mættur í dómsal Innlent Skilur ekkert í niðurstöðu Guðrúnar Innlent Svarar fyrir að hafa banað syni sínum í Kópavogi Innlent Talinn hafa svipt barn frelsi sem hann grunaði um að stela veipi Innlent Gerði sér mat úr kattaráti andlega veikrar konu Erlent „Fólk fer hreinlega grátandi frá mér“ Innlent „Lærisveinn“ Pélicot sagður hafa beitt sömu aðferðum á eigin konu Erlent Sigurður Helgi Guðjónsson látinn Innlent Fleiri fréttir Vara gangnamenn við snjóflóðahættu Þarf ekki leyfi nágranna til að reka háværa daggæslu Silja Björk biður Ingó afsökunar Bjarkey undir árvökulu auga þungavigtar Sjálfstæðisflokks Helgi í Góu og fyrrverandi borguðu brúsann Löng bið barna eftir geðheilbrigðisþjónustu ekki ásættanleg Bæjarstjóri Reykjanesbæjar í veikindaleyfi Bein útsending: Málþing um jafnrétti í heilbrigðisþjónustu Dragi úr virðingu fyrir lögunum Almennt launafólk finni ekki fyrir auknum kaupmætti Fleiri fresta læknisferðum vegna langra biðlista Ríkið verði af milljörðum og óhóflegur kostnaður af heilbrigðisþjónustu Skilur ekkert í niðurstöðu Guðrúnar Vilja halda áfram sameiningarviðræðum á Suðurnesjum Svarar fyrir að hafa banað syni sínum í Kópavogi Mega nú setja svalir á hús í Norðurmýri og Rauðarárholti Albert mættur í dómsal Talinn hafa svipt barn frelsi sem hann grunaði um að stela veipi Sigurður Helgi Guðjónsson látinn Lögregla kölluð til vegna slagsmála Heildartjón á mannvirkjum áætlað allt að 16 til 17 milljarðar Lítið mál að fjölga löggum „Góði líttu þér nær!“ „Þetta er ákall frá ungmennunum sjálfum“ Tækifæri til að sammælast um breytingar á stjórnarskránni „Fólk fer hreinlega grátandi frá mér“ Hafi ekki verið að gera lítið úr öryrkjum og bölvar gallaðri reiknivél Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Tárast yfir verði á aðgerð og þúsundir barna á biðlista „Það var mikil geðshræring á heimilinu“ Sjá meira