Innlent

Hljóp í veg fyrir bíl

Sex ára drengur, sem var á göngu með móður sinni á Rauðarárstíg í Reykjavík á tíunda tímanum í gærkvöldi, sleit sig lausann frá móðurinni og hljóp út á götuna í veg fyrir bíl. Bíllinn var sem betur fer á lítilli ferð þannig að höggið varð ekki mikið þegar þeir skullu saman.

Drengurinn var fluttur á Slysadeild en reyndist ekki alvarlega meiddur. Sömuleiðis slapp hjólreiðamaður líka lítið meiddur eftir árekstur við annan hjólreiðamann á hjólreiðastíg í Fossvogi í gærkvöldi. Gert var að sárum hans á Slysadeild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×