Innlent

Fimmtug kona full á reiðhjóli hrækti á lögreglumenn

Athugið að myndin er úr safni og tengist ekki fréttinni beint.
Athugið að myndin er úr safni og tengist ekki fréttinni beint.
Kona um fimmtugt var stöðvuð í miðborginni um helgina þar sem hún var á reiðhjóli. Lögreglumönnum þótti hún heldur völt á hjólinu og höfðu því afskipti af henni.

Konan var afar ósátt með þessi afskipti, hreytti út úr sér fúkyrðum og hrækti á laganna verði. Hún var því látin blása í áfengismæli og staðfesti niðurstaðan grunsemdir lögreglu um að konan væri með öllu ófær um að vera á reiðhjóli.

Hún var því næst flutt á lögreglustöð en síðan sleppt fljótlega úr haldi þegar hún hafði róast. Fór konan þá sína leið fótgangandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×