Innlent

Skipulagsmál vegna nýs spítala komin á fullan skrið

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Áformum um byggingu nýs Landspítala eru að komast á fullan skrið eftir að málið tafðist í Skipulagsráði, en Reykjavíkurborg gæti verið búin að afgreiða deiliskipulag um og eftir áramót.

Húsnæði Landspítalans er víða í mjög slæmu ásigkomulagi eins og kom rækilega fram í fréttaskýringu um málið í fréttum okkar á sunnudag. Ekkert er hægt að gera því peningar til viðhalds eru ekki til.

Eins og þetta var rakið í fréttaskýringu okkar, er þetta ekki skýr vísbending um að spítalinn þoli ekki meiri niðurskurð, fyrst að þessar endurbætur sitja á hakanum árum saman? „Ég held að það sé rétt sem kom fram í þessari umfjöllun að núna þegar við erum að fara í gegnum uppstokkun á stofnunum þá látum við þjónustu við sjúklinga hafa forgang. Það hefur Landspítalinn gert," segir Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra.

Guðbjartur bendir á að nýr spítali sé í burðarliðnum og það kunni útskýra það að menn hafi frestað viðhaldi. Bygging spítalans hefur hins vegar tafist, m.a vegna óafgreiddra skipulagsmála, en nú eru hjólin farin að snúast.

Skipulagsráð Reykjavíkurborgar mun í fyrramálið taka til umfjöllunar svokallaða hagsmunakynningu vegna nýs spítala. Ef hún gengur eftir fer spítalinn í deiliskipulag sem tekur sex til átta vikur til viðbótar. Ef allt gengur síðan að óskum gætu framkvæmdir hafist í maí eða júní á næsta ári við Hringbrautina, að sögn Gunnars Svavarssonar, formanns byggingarnefndar vegna nýs spítala.

Gunnar segir að samþykki Alþingis þurfi að liggja fyrir að loknu útboði. Og síðan eigi eftir að fullhanna götur og mannvirki sem geti hafist á vormánuðum.

Um er að ræða eitt stærsta skipulagsmál Íslandssögunnar í þéttbýli. Er þetta ekki gífurleg innspýting fyrir atvinnulífið næsta sumar ef þessi áætlun heldur? „Jú, þetta er gríðarlega stórt verkefni, enda fjárfesting upp á fjörutíu milljarða. Þetta skapar þrjú þúsund bein störf og mikinn fjölda óbeinna starfa í kjölfarið," segir Gunnar. thorbjorn@stod2.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×