Innlent

Nokkuð um umferðalagabrot

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Fimmtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi og Garðabæ. Sex voru teknir á laugardag og níu á sunnudag. Þetta voru tíu karlar á aldrinum 20-62 ára og fimm konur, 24-58 ára. Fjórir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.

Um helgina voru fimm ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fjórir þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Einn var tekinn á laugardag og fjórir á sunnudag. Þetta voru fjórir karlar á aldrinum 20-28 ára og ein kona, 29 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×