Innlent

Íslensk kona handtekin í Færeyjum fyrir fíkniefnasmygl

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fimmtíu og sjö ára gömul íslensk kona var handtekin í Færeyjum í dag fyrir að hafa reynt að smygla inn 1,5 kílóum af hassi til Færeyja. Konan kom til Færeyja í morgun með Norrænu. Færeyska útvarpið segir að konan muni sitja í fjögurra vikna gæsluvarðhaldi. Konan segist sjálf hafa verið burðardýr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×