Innlent

Black Pistons fyrir dóm

Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn tveimur mönnum, sem grunaðir eru um sérstaklega hættulega líkamsárás og frelsissviptingu í maí síðastliðnum, hóst í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan korter yfir níu í morgun.

Talið er að um uppgjör innan vélahjólasamtakanna Black Pistons hafi verið að ræða en annar mannanna er forsprakki samtakanna á Íslandi. Samkvæmt dagskrá héraðsdóms er gert ráð fyrir að aðalmeðferðin standi fram eftir degi og einnig á morgun.

Mennirnir hafa setið í gæsluvarðhaldi frá því í maí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×