Innlent

Þunguð kona flutt með þyrlu eftir bílslys

Kona slasaðist í bílveltu í gærkvöldi rétt austan við Múlakvísl. Ákveðið var að kalla eftir þyrlu til þess að flytja hana á sjúkrahús en hún er gengin átta mánuði á leið. Sjúkrabíll flutti konuna að Skógum þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar beið eftir henni og flutti á Borgarspítalann þar sem lent var rétt fyrir miðnætti.

Meiðsl hennar voru ekki talin mjög alvarleg og var hún með meðvitund allan tímann á meðan á flutningnum stóð. Tvennt var í bílnum þegar hann valt og slapp hinn aðilinn ómeiddur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×