Skora á stuðningsmenn KR í Mýrarbolta Boði Logason skrifar 7. júlí 2011 14:30 Mýrarbolti Mynd/Vilhelm „
Ég trúi ekki öðru en þeir taki þessu annars eru þeir gungur," segir Eyþór Jóvinsson, forsvarsmaður stuðningsmannafélags BÍ/Bolungarvíkur, sem ber nafnið Blár og Marinn. Þeir hafa nú skorað á stuðningsmannafélag KR, Miðjuna, í Mýrarbolta áður en undanúrslitaleikur liðana í Valitor-bikarnum fer fram um Verslunarmannahelgina. Evrópumótið í Mýrarbolta verður haldið á Ísafirði í 8. sinn og hefur mótið vaxið með hverju ári og hefur líklega aldrei verið stærra. Eyþór segir að hugmyndin sé að skapa stemmingu fyrir leiknum en búast má við mörgum KR-ingum í bæinn yfir helgina til að fylgjast með sínu liði. „Ég held að það verði alveg stappað á vellinum því hér er alltaf fullt af fólki yfir Verslunarmannahelgina. Þetta verður heljarinnar hátíð enda er rosalega gaman að fá svona stórt lið í heimsókn," segir Eyþór. Ekki er vitað hvort að Miðjan taki boðinu en áskorunin var send á fjölmiðla sem og á meðlimi Miðjunnar. „Nú er bara að bíða og sjá hvort að þeir þora að taka boðinu, þeir geta ekki annað en tekið þessu," segir Eyþór léttur í bragði. Eyþór bendir á að stuðningsmannafélagið Blár og Marinn hafi einungis verið til í þrjá leiki en miðjan sé töluvert eldri og reynslumeiri. „Fótboltahefðin er nýtilkomin hingað á Ísafjörð og því verður þetta bara skemmtileg - ef þeir taka áskoruninni," segir Eyþór að lokum.Hvað er Mýrarbolti?Mýrarbolti svipar mjög til fótbolta nema að leikið er í mýri, en ekki á grasi. Þar að auki eru leikreglur öllu frjálslegri og refsingar fyrir leikbrot í skrautlegri kantinum, þar ber helst að nefna að leikmenn kyssa á bágtið, verða fyrir skítkasti eða eru látnir spila með hauspoka. Vænta má að úrslitin í mýraboltanum gefi fyrirheit um það sem koma skal í undanúrslitaleiknum, því búast má við hörku spennu og skemmtun.
Mest lesið Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Innlent „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Innlent Umfangsmestu fangaskipti frá tímum kalda stríðsins Erlent VG mælist með 3,5 prósent Innlent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Innlent Borinn niður af klettaborginni Innlent Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Innlent Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn Innlent Fólk keyri ekki fyrr en tólf tímum eftir síðasta sopa Innlent Segir setningarathöfnina traðka á mannlegri reisn Erlent Fleiri fréttir „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Borinn niður af klettaborginni VG mælist með 3,5 prósent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Frú forseti, klútaveisla og undrandi bændur Fólk keyri ekki fyrr en tólf tímum eftir síðasta sopa „Mýkri leiðir í hörðum heimi“ Tjá sig ekki eftir fullyrðingar ráðuneytisins í nafnabreytingarmálinu Máttu ekki synja kvikmyndagerðarmanni um eftirvinnslustyrk Fólk á förnum vegi: Ein felldi tár og önnur mjög spennt fyrir Höllu Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins „Covid virðist vera komið til að vera“ Allt að verða klárt fyrir embættistöku sjöunda forseta lýðveldisins Árásum gegn opinberum starfsmönnum fari fjölgandi Embættistaka, Covid-19 og hótanir í garð lögreglu Aukinn viðbúnaður til að bregðast við eggvopnaógn Rafbílar rétta aðeins úr kútnum eftir dýfu „Ég hef látið orð út úr mér sem hefðu átt að vera ósögð“ Fjórðungur landsmanna sótti símenntun í fyrra Íbúum með skráð lögheimili í Grindavík fækkað um tæpan þriðjung Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn Ók á mann og stakk af Rangt að ráðuneytið hafi gefið út leiðbeiningar um kenninöfn Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílveltu í Sjálandi Hefði horft á lokakvöldið hefði Hera Björk komist áfram Bíll hafnaði utan vegar í Hafnarfirði Guðni lítillátur þegar hann sagði að allt myndi bjargast án hans Allt klárt hjá lögreglu og sjálfboðaliðum fyrir þjóðhátíð Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Sjá meira