Erlent

Að minnsta kosti sextán fallnir í Hama

MYND/AP
Að minnsta kosti sextán hafa fallið í átökum í sýrlensku borginni Hama síðustu tvo sólarhringa að því er mannréttindasamtökin Human Rights Watch  fullyrða.

Öryggissveitir Bashar al-Assads forseta lögðu til atlögu við mótmælendur í borginni eftir gríðarlega fjölmenn mótmæli gegn stjórninni á föstudaginn var. Tugir hafa slasast í aðgerðunum og herma fregnir að sýrlenskir hermenn skjóti menn á færi fyrir litlar sem engar sakir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×