Innlent

Lík kornabarns finnst í ruslagámi í Reykjavík

Mynd tengist frétt ekki beint
Mynd tengist frétt ekki beint Mynd úr safni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú voveifilegt lát barns en lík þess fannst í ruslagámi við hótel í Reykjavík þar sem kona, sem talin er hafa fætt það, vinnur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Þar segir að komið hafi verið með konu í gærmorgun á bráðamóttöku Landspítalans vegna blæðinga og kviðverkja. "Þrátt fyrir að konan kannaðist ekki við að hafa verið ófrísk, töldu læknar að hún hefði misst fóstur og verkir og blæðing stöfuðu af því. Við nánari skoðun voru læknar þess fullvissir að hún hefði fætt barn þá skömmu áður eða á síðasta sólarhring," segir í tilkynningunni.

Lögreglu var þá gert viðvart og hófst rannsókn og eftirgrennslan eftir barninu. Skömmu síðar fann lögreglan nýfætt barn í ruslagámi við hótelið þar sem konan vinnur, en vitað var að hún hefði verið þar í gærmorgun. Barnið var látið þegar það fannst en talið er að það hafi fæðst lifandi.

Konan er í gæslu lögreglu á sjúkrahúsi en unnusti hennar í haldi lögreglu. Í tilkynningunni segir að fjöldi lögreglumanna hafi komið að málinu og standa yfirheyrslur yfir.

Samkvæmt heimildum Vísis voru lögreglumenn að störfum við hótelið í allan gærdag. Þar var svæði girt af með gulum borða og lögreglumenn rannsökuðu vettvang. Þegar yfirmenn lögreglunnar voru spurðir um málið í gærdag vörðust þeir allra frétta og sögðust ekki vita hvað um væri að vera á hótelinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×