Innlent

Veikur skipverji sóttur

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.
Þyrla Landhelgisgæslunni var kölluð út skömmu fyrir fjögur í dag vegna alvarlegra veikinda um borð í togara sem staddur var um 50 sjómílur Austur af landi.

Aðstoðarbeiðnin barst í gegnum Neyðarlínuna og eftir samráð skipstjóra við þyrlulækni var ákveðið að kalla út TF-LÍF.

Skipið tók strax upp veiðarfæri og stefndi til lands. Er það nú í nágrenni Neskaupstaðar og verður þyrlan komin að skipinu um klukkan sjö. Verður skipverjinn fluttur á Egilsstaði þar sem sjúkraflugvél tekur við honum og flytur hann á sjúkrahús á Akureyri eða í Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×