Innlent

Ólafur Ragnar aldrei umdeildari

Ólafur Ragnar Grímsson.
Ólafur Ragnar Grímsson.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hefur aldrei verið umdeildari en núna. Þetta segir prófessor í stjórnmálafræði en ný könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins sýnir að innan við helmingur landsmanna vill að Ólafur bjóði sig aftur fram.

Könnunin sýnir aðeins tæp 48 prósent landsmanna eru hlynnt því að Ólafur Ragnar gefi aftur kost á sér í forsetaembættið en kjörtímabili hans líkur á næsta ári. Um fimmtíu og tvö prósent vilja ekki að hann bjóði sig aftur fram. Nokkur munur er á afstöðu fólks eftir því hvaða stjórnmálaflokk það styður. Þannig vilja um 56 prósent stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að hann bjóði sig aftur fram en aðeins um þrjátíu prósent stuðningsmanna Samfylkingar og Vinstri grænna. Könnunin var gerð á fimmtudaginn. Hringt var í 800 manns sem voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá.

Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri, segir Ólaf Ragnar alltaf hafa verið mjög umdeildan mann ekki síst eftir málið með fjölmiðlalögin. Icesavemálið hafi líka orðið til þess að gamlir vinir hafa snúist gegn honum. Síðan hafi ýmislegt gerst upp á síðkastið þar sem Ólafur hafi tekið afstöðu gegn þeim sem ættu að vera vinir hans í dag auk þess sem hann hafi gagnrýnt ríkisstjórnina. Það sé því ekki á vísan að róa með hvar hann eigi fylgi núna og hann hafi líklega aldrei verið umdeildari en núna.

Grétar býst ekki við að Ólafur gefi það út hvort hann sækist eftir endurkjöri fyrr en í nýársræðu sinni. Miðað við hvernig hann hafi verið að koma út núna undanfarið þá er ekki víst að hann sé í neinni vinasöfnun. Það geti gefið til kynna að hann sé ekkert endilega að spá í framhald.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×