Innlent

Langflest börn fædd árið 2009 með pláss

Flest börn úr árgangi 2010 munu ekki fá pláss fyrr en á næsta ári. fréttablaðið/hari
Flest börn úr árgangi 2010 munu ekki fá pláss fyrr en á næsta ári. fréttablaðið/hari
Öll börn fædd á árinu 2009 hafa fengið boð um leikskólapláss í Reykjavíkurborg á þessu ári. Þó til sé fermetrarými í sumum leikskólum til að taka við börnum þá hafa stöðugildi í leikskólum í sumum hverfum verið flutt til svo hægt sé að koma 2009 árganginum fyrir.

„Á árunum 2009 og 2010 fjölgaði fæddum börnum í borginni mjög – það varð sannkölluð barnasprengja,“ segir Sigrún Björnsdóttir, upplýsingafulltrúi leikskólasviðs. „Til að mæta því án þess að kosta til miklum fjármunum í nýja leikskóla hefur meðal annars verið komið upp viðbótarhúsnæði við nokkra leikskóla í borginni. Þannig hafa verið búin til á þriðja hundrað ný leikskólapláss.“

Miðað er við að þau börn sem verða tveggja ára á árinu fái leikskólapláss. Oftast eru börn tekin inn að loknu sumarleyfi þegar elsti leikskólaárgangurinn fer í grunnskóla. Þannig að sum börn geta þá verið á bilinu nítján mánaða til tveggja ára.

Nokkuð hefur verið um að börn fædd árið 2010 sem hafa náð átján mánaða aldri hafi ekki enn fengið boð um pláss. Sigrún útskýrir að börn fædd það ár verði flest hver ekki tveggja ára fyrr en á næsta ári. „Eins og staðan er nú munu þau öll fá úthlutað leikskólaplássi á næsta ári. Þá er gert ráð fyrir sjötíu nýjum leikskólaplássum vorið 2012,“ segir hún.

Rúmlega 200 leikskólapláss í sjálfstætt starfandi leikskólum fyrir börn fædd 2009 eru niðurgreidd af borginni. Um 1.400 börn hófu nám í 1. bekk í haust og til samanburðar má geta þess að 1.740 börn eru fædd í Reykjavík árið 2009. Af þeim eru 1.700 börn nú þegar í leikskólavistun eða hafa fengið boð um leikskólapláss.

sunna@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×