Erlent

Eldgos hafið að nýju í japanska eldfjallinu Shinmoe

Eldgos er hafið að nýju í japanska eldfjallinu Shinmoe en frá því að eldfjallið vaknaði af áratugalöngum dvala sínum í síðasta mánuði hafa nýir eldgígar myndast sjö sinnum í því.

Um ellefu hundruð manns eru enn í bænum Takaharu við rætur eldfjallsins en lögreglan hvetur þá nú til að flýja bæinn. Hingað til hafa yfir 6.000 manns flúið úr héraðinu sem Shinmoe tilheyrir.

Talsmaður japönsku eldgosamiðstöðvarinnar segir að fólk ætti að búast við hinu versta í framhaldi af nýjasta gosinu. Shinmoe er heimsþekkt fyrir hlutverk sitt í James Bond myndinni You Only Live Twice.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×