Innlent

Kannabisræktandi sviptur ökuréttindum

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að hafa ræktað 46 kannabisplöntur á heimili sínu með það að markmiði að selja kannabisefnið.

Þá var maðurinn einnig sakfelldur fyrir að aka undir áhrifum vímuefna. Maðurinn játaði brot sín skýlaust. Hann hefur margsinnis áður komist í kast við lögin, meðal annars hefur hann verið dæmdur þrívegis fyrir hegningalagabrot.

Dómur mannsins er skilorðsbundinn til tveggja ára. Þá er hann einnig sviptur ökuréttindum í tvö ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×