Innlent

Ráðherra í leiðangri um vestfirska vegi

Kristján Már Unnarsson skrifar
Leið ráðherra liggur framhjá fossinum Dynjandi í Arnarfirði. Mynd/ Jón Sigurður.
Leið ráðherra liggur framhjá fossinum Dynjandi í Arnarfirði. Mynd/ Jón Sigurður.
Ráðherra vegamála, Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, lagði í morgun upp í þriggja daga leiðangur um Vestfirði til að kynna sér ástand vegamála. Með í för eru Hreinn Haraldsson vegamálastjóri og nokkrir sérfræðingar Vegagerðarinnar.

Helsti tilgangur leiðangursins er að leita leiða til að höggva á hnút í vegagerð um Austur-Barðastrandarsýslu; deilur um nýtt vegstæði um Teigsskóg, sem Vegagerðin telur bestu lausnina til að leysa af fjallvegi um Ódrjúgsháls og Hjallaháls. Sveitarfélög á sunnanverðum Vestfjörðum þrýsta á að þessi leið verði valin en landeigendur berjast gegn henni.

Patreksfjörður, Tálknafjörður og Bíldudalur stefna í að verða síðustu þéttbýliskjarnar á Íslandi til að tengjast öðrum landshlutum með bundnu slitlagi. Þaðan eru enn 69 kilómetra langir malarkaflar til Reykjavíkur. Tafir vegna dómsmála, skipulagsmála og umhverfismats hamla ekki síður framkvæmdum en fjárskortur, enda hafa fjármunir verið teknir til hliðar vegna stórra verkefna, eins og í vegagerð um Vattarfjörð og Kjálkafjörð.

Þegar Ögmundur var spurður á Alþingi í vor hvernig vegamál byggðanna á sunnanverðum Vestfjörðum yrðu löguð gat hann engu svarað en kvaðst ætla vestur á firði þegar þingi lyki og vinna að því koma málinu á réttan rekspöl. Fyrirspyrjandinn, Einar K. Guðfinnsson, lýsti þá stöðunni á sunnanverðum Vestfjörðum sem mestu sorgarsögu í uppbyggingu vegamála á Íslandi á undanförnum árum.

Íbúar Þingeyrar eru kannski verst staddir, geta þó komist bakaleiðina um Ísafjörð á malbiki, en þurfa annars að þola 137 kílómetra langa malarkafla á þeim vegi sem eðlilegast væri að aka til Reykjavíkur. Á þeirri leið eru jafnframt tveir af erfiðustu fjallvegum landsins, Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði.

Ögmundur Jónasson og fylgdarlið fara um Hólmavík og Djúp í dag og gista á Ísafirði í kvöld. Á morgun ekur ráðherrann til Patreksfjarðar en fimmtudagurinn verður svo nýttur til að aka um Barðaströndina. Ögmundur kvaðst í morgun búast við að sjá mikið af holum og steinum á ferðalaginu um vestfirsku vegina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×