Erlent

Reyndi að smygla eiginmanninum í ferðatösku

Flóttinn mikli í Mexíkó.
Flóttinn mikli í Mexíkó. MYND/AP
Mexíkósk kona var á dögunum handtekin í fangelsi þar í landi en hún reyndi að frelsa mann sinn úr fangelsinu með því að troða honum í venjulega ferðatösku. Fangaverðir veittu því athygli að konan virtist mjög taugaóstyrk þegar hún yfirgaf fangelsið eftir að hafa heimsótt bóndann. Þá burðaðist hún með ferðatösku sem tók í.

Þegar verðirnir kíktu á innihaldið kom eiginmaðurinn í ljós í fósturstellingu eins og sjá má á myndinni. Fanginn er að afplána 20 ára dóm fyrir vopnaburð. Eiginkonan má búast við að eyða nokkrum árum í fangelsi eins og verri helmingurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×